Um Kvikmyndasafn Íslands

Lagalegt hlutverk Kvikmyndasafns Íslands er margþætt. Meginhlutverk safnsins er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.

Sjá Kvikmyndalög:

Skylduskil á kvikmyndum

Kvikmyndasafn Íslands er eitt af þriggja varðveislusafna landsins. Eitt helsta hlutverk þess er að varðveita íslenskan kvikmyndaarf og hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis. Stofnunin safnar, skrásetur og varðveitir íslenskar kvikmyndir, samvinnuverkefni íslenskra og erlendra aðila og erlendar kvikmyndir sem teknar hafa verið á Íslandi. Kvikmynd sem gefin hefur verið út til sýningar í kvikmyndahúsi, sjónvarpi, á diskum eða á neti skal afhenda Kvikmyndaafni Íslands til varðveislu eins fljótt og auðið er eftir að framleiðslu lýkur.

Sjá lög um skylduskil

Skil á öðru efni

Kvikmyndasafn Íslands tekur í sumum tilfellum á móti kvikmyndaefni sem ekki er skilaskylt, hafi það sögulegt/menningarlegt gildi og íslenskar tilvísanir. Safnið tekur eingöngu efni til varanlegrar varðveislu, en geymir ekki efni fyrir einstaklinga eða stofnanir.  Gott er að senda erindi á safnið ef óskað er eftir því að leggja efni inn á safnið til varanlegrar varðveislu. Erindið er tekið til skoðunar og því svarað eins fljótt og auðið er.

Hafa samband!

  • Kvikmyndasafn Íslands Opnunartími Opnunartími

    Mán-fim: 10.00-16.00
    Fös: 10.00-14.00

  • Kvikmyndasafn Íslands Símanúmer Símanúmer

    +354 565 5993

Starfsmenn Kvikmyndasafns Íslands

Nafn Verksvið Símanúmer Tölvupóstfang
Björn Þór Björnsson Sérfræðingur varðveislu bjorn.th.bjornsson@kvikmyndasafn.is
Ester Bíbí Ásgeirsdóttir Verkefnastjóri skilaskyldu og miðlunar ester.b.asgeirsdottir@kvikmyndasafn.is
Gunnar Tómas Kristófersson Sérfræðingur varðveislu og rannsókna gunnar.t.kristofersson@kvikmyndasafn.is
Gunnþóra Halldórsdóttir Verkefnastjóri varðveislu gunnthora.halldorsdottir@kvikmyndasafn.is
Henrik Østergaard Filmuvörður/forvarsla henrik.ostergaard@kvikmyndasafn.is
Jón Stefánsson Verkefnastjóri stafvæðingar og endurgerðar jon.stefansson@kvikmyndasafn.is
Konráð Gylfason Stafvæðing konrad.gylfason@kvikmyndasafn.is
Madison Archer Jónsdóttir Stafvæðing madison.a.jonsdottir@kvikmyndasafn.is
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir Forstöðumaður thora.s.ingolfsdottir@kvikmyndasafn.is
Þorgerður Þorleifsdóttir Skráning og efnisgreining thorgerdur.thorleifsdottir@kvikmyndasafn.is