
Kvikmyndsafn Íslands hlaut titilinn Fyrirmyndarstofnun 2025. Þrjú síðastliðin ár hefur safnið hlotið titilinn Fyrirmyndarstofnun en þann titil hljóta þær stofnanir sem eru í einu af fimm efstu sætunum, Kvikmyndasafnið hafnaði í öðru sæti að þessu sinni en aðeins munaði 0,041 stigi á Kvikmyndasafni og Menntaskólanum á Tröllaskaga sem hafnaði í efsta sæti. Það er Sameyki stendur að þeirri könnun sem send er út til stofnana og er undirstaða titilsins en mældir eru ákveðnir þættir í starfi stofnunarinnar og þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti. Frekari upplýsingar má finna hér.