Magnús Jóhannsson (3. september 1912 – 15. september 1997) var fæddur að Skjaldfönn í Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi. Foreldrar hans voru Jóna Sigríður Jónsdóttir, ljósmóðir, frá Ytri-Hjarðardal í Önundarfirði, en uppalin á Stað í Súgandafirði, og Jóhann Jens Matthías Ásgeirsson frá Skjaldfönn. Magnús var þriðji í röð átta systkina. Hann lærði tréútskurð hjá Guðmundi frá Mosdal 1928 en 1932 flutti hann til Reykjavíkur til að læra útvarpsvirkjun á Viðgerðastofu útvarpsins. Á árunum 1933-1943 starfaði hann sem stöðvarvörður á Vatnsenda ásamt Sveinbirni Egilssyni. Þeir stofnuðu Radio & raftækjastofuna 1943 að Óðinsgötu 2 í Reykjavík. Magnús bjó í herbergi í bakhúsi sem Sveinbjörn hafði byggt og hýsti verkstæði og upptökusal Raftækjastofunnar. Af lýsingum Úlfars, sonar Sveinbjörns, var þessi vistarvera ekki stór og rúmaði aðeins rúm og ísskáp.1Magnús var einn af fjölskyldunni. Hann gaf sig mikið að mér og sýndi mér mikla þolinmæði. Ég fékk að prófa mig áfram við tækin á Radiostofunni og var reyndar 15 ára farinn að vinna hjá fyrirtækinu fyrst sem aðstoðarmaður við uppsetningu kallkerfa en síðar við hljóðupptökur. Viðtal við Úlfar Sveinbjörnsson, 3.8. 2022. En af lýsingum eiginkonu Sveinbjörns að dæma kom það sennilega ekki að sök því unnið var alla daga fram undir miðnætti, slíkur var áhuginn á fjarskiptatækninni.2Morgunblaðið – 299. tölublað (31.12. 1995) bls. 34-35. Magnús var einn af stofnfélögum Jöklarannsóknafélagsins 19503Fólkið í landinu; Magnús Jóhannsson, sjónvarpsþáttur á RÚV 20.7. 1991. enda þekkti hann Jón Eyþórsson veðurfræðing, stofnanda og formann Jöklarannsóknafélagsins, vel, leit raunar á hann sem fóstra sinn.4Magnús var aðstoðarmaður Jóns við mælingar á Drangajökli rétt við Skjaldfönn, æskuheimili sitt, frá unga aldri. Jón var brautryðjandi í jöklarannsóknum hér á landi, fór í tvær frægar jöklarannsóknaferðir 1939 og 1951. Hann stofnaði Jöklarannsóknafélag Íslands 1950 og var formaður þess til dauðadags. Félagið átti eftir að vinna afar þýðingarmikla grunnvinnu á sviði jöklarannsókna. Auk þess var Jón einn af brautryðjendum á sviði hafísrannsókna og loftslagsbreytinga hér á landi. Hann sat í útvarpsráði 1932-46 og flutti oft erindi í þættinum Um daginn og veginn. Magnús var mjög virkur í félaginu og kom að jöklarannsóknum, var í ferða- og skálanefndum og sá um fjölmarga leiðangra á jökla og filmaði talsvert í þessum ferðum5Morgunblaðið, minningargrein – 215. tölublað (23.09. 1997), bls. 40. og lét sig ekki muna um að teikna sinn eigin jöklabíl og láta smíða hann.6Viðtal við Úlfar Sveinbjörnsson, 3.8. 2022.
Konu sinni, Hönnu Brynjólfsdóttur (1910-1989) ljósmyndara7Í bókinni Ljósmyndarar á Íslandi segir um Hönnu: Lærði ljósmyndun hjá Lofti Guðmundssyni 1927-1930. Var ásamt Ingibjörgu Sigurðardóttur fyrst kvenna til að taka sveinspróf í ljósmyndun. Starfaði á ljósmyndastofu Lofts 1930-1933 og af og til á árunum 1936-1951. Varð meðeigandi í ljósmyndastofunni Asis og starfaði þar 1952-1979., kynntist Magnús 1957 og giftu þau sig tveimur árum síðar, 7.3. 1959, og bjuggu meðan Hanna lifði í húsi hennar í Skeiðarvogi 91. Hanna var fráskilin8Fyrrverandi maður Hönnu og barnsfaðir var séra Garðar Svavarsson. og átti þrjú stálpuð börn sem voru komin og að komast á unglingsaldur þegar hún og Magnús kynntust. Þau eru í aldursröð: Örn (rafmagnsverkfræðingur), Jóna (hjúkrunarfræðingur) og Gylfi (lyfsali). Þau Magnús áttu sameiginleg áhugamál í ljósmyndun og hálendis- og jöklaferðum og voru virkir félagar í Jöklarannsóknafélagi Íslands. Jóna, dóttir Hönnu, segir að fólk hafi skrifað sig á lista sem lágu frammi t.d. bæði á ljósmyndastofunni Asis á Laugaveginum þar sem Hanna vann og hjá Radio & raftækjastofunni á Óðinsgötu og safnað hafi verið saman í hópa til að fylla bílana sem fóru í jöklarannsóknaferðirnar. Þau Magnús og Hanna hafi tekið fjölda mynda í þessum ferðum, aðallega slides-myndir, og þegar búið var að framkalla voru haldnar myndasýningar heima hjá þeim í Skeiðarvoginum með ferðafélögunum og hafi oft verið kátt á hjalla.9Jóna Garðarsdóttir, viðtal 2022.
Heimilislífið var skemmtilegt. Magnús hafði aðstöðu fyrir kvikmyndagerð sína í kjallara hússins og án vafa hefur það átt sinn þátt í almennt góðu ásigkomulagi þess myndefnis sem hann hlutaðist til um að varðveita að hann skyldi vera meðvitaður um varðveisluaðferðir svo sem kalda geymslu fyrir filmuefni en Magnús geymdi filmurnar í kaldri geymslu undir útidyratröppunum.10Sama. Í eftirmælum um Magnús segir: „Magnús var hægur maður í fasi, stilltur og hlýr, traustur vinur og fús til að miðla þekkingu sinni.“11Morgunblaðið, minningargrein – 215. tölublað (23.09. 1997), bls. 40. Af minningargreinum að dæma má ætla að hann hafi gefið sig allan í það sem hann tók sér fyrir hendur.
[1] Magnús var einn af fjölskyldunni. Hann gaf sig mikið að mér og sýndi mér mikla þolinmæði. Ég fékk að prófa mig áfram við tækin á Radiostofunni og var reyndar 15 ára farinn að vinna hjá fyrirtækinu fyrst sem aðstoðarmaður við uppsetningu kallkerfa en síðar við hljóðupptökur. Viðtal við Úlfar Sveinbjörnsson, 3.8. 2022.
[2] Morgunblaðið – 299. tölublað (31.12. 1995) bls. 34-35.
[3] Fólkið í landinu; Magnús Jóhannsson, sjónvarpsþáttur á RÚV 20.7. 1991.
[4] Magnús var aðstoðarmaður Jóns við mælingar á Drangajökli rétt við Skjaldfönn, æskuheimili sitt, frá unga aldri. Jón var brautryðjandi í jöklarannsóknum hér á landi, fór í tvær frægar jöklarannsóknaferðir 1939 og 1951. Hann stofnaði Jöklarannsóknafélag Íslands 1950 og var formaður þess til dauðadags. Félagið átti eftir að vinna afar þýðingarmikla grunnvinnu á sviði jöklarannsókna. Auk þess var Jón einn af brautryðjendum á sviði hafísrannsókna og loftslagsbreytinga hér á landi. Hann sat í útvarpsráði 1932-46 og flutti oft erindi í þættinum Um daginn og veginn.
[5] Morgunblaðið, minningargrein – 215. tölublað (23.09. 1997), bls. 40.
[6] Viðtal við Úlfar Sveinbjörnsson, 3.8. 2022.
[7] Í bókinni Ljósmyndarar á Íslandi segir um Hönnu: Lærði ljósmyndun hjá Lofti Guðmundssyni 1927-1930. Var ásamt Ingibjörgu Sigurðardóttur fyrst kvenna til að taka sveinspróf í ljósmyndun. Starfaði á ljósmyndastofu Lofts 1930-1933 og af og til á árunum 1936-1951. Varð meðeigandi í ljósmyndastofunni Asis og starfaði þar 1952-1979.
[8] Fyrrverandi maður Hönnu og barnsfaðir var séra Garðar Svavarsson.
[9] Jóna Garðarsdóttir, viðtal 2022.
[10] Sama.
[11] Morgunblaðið, minningargrein – 215. tölublað (23.09. 1997), bls. 40.