Fernseh skanni og myndstjórnunartæki

Safnnúmer: Ss 07-1, 3 og Ss 07-1, 4

Fernseh G.M.B.H. skanni fyrir 16 mm (svarthvíta) filmu. Skanninn samanstendur af 16 mm filmusýningarvél sambyggðri segulbandsspilara fyrir 16 mm tónband (perfband).

Skannanum fylgir myndstjórnunartæki að gerðinni Kw 75 E sem stillti áferðina á myndinni sem verið var að sýna á skannanum, þ.e. ljósstyrk o.fl.

Skanninn breytti myndinni á filmunni yfir í hliðrænt sjónvarpsmerki sem fór í sendibúnaðinn. Skanninn er annar af tveimur skönnum þessarar gerðar sem Sjónvarpið flutti inn við stofnun þess árið 1966. Skannarnir þóttu þeir bestu sem hægt var að fá á þeim tíma og voru gæði útsendingar Sjónvarpsins á staðli við útsendingar úti í heimi. Skanninn spilaði 16 mm filmu og 16 mm tónband en það var staðallinn fyrir sjónvarpsvinnslu. 16 mm filmur voru þægilegri í vinnslu og ódýrari heldur en 35 mm filmur sem voru algengari við gerð bíómynda. Á þessum tíma var það nokkuð nýleg tækni að geta spilað hljóð og mynd samtímis, en í sitthvoru lagi, áður var notast við tækni þar sem hljóðrásin var tekin beint upp á filmuna sjálfa. Í útsendingu þurfti tæknimaður að sitja yfir tækinu og stilla merkið (signalið) þannig að myndin væri rétt fyrir útsendingu. Fyrstu tæknimennirnir sem störfuðu í Sjónvarpinu þurftu að sækja námskeið í Danmörku til að læra þessa tækni en tækjunum fylgdi mikið og stöðugt viðhald. Ef tæknibilun kom upp í útsendingu var sett upp skilti þar sem á stóð hið fræga Afsakið hlé.

Komdu í heimsókn
Hvaleyrarbraut 13,
220 Hafnarfjörður
Kt. 530678-0409
Opið virka daga
mán. - fim. 10:00 - 16:00
fös. 10:00 - 14:00
Logo Fyrirmyndar stofnun 2023