Kodak Carousel skyggnuvél

Safnnúmer: Sm 09-11, 1

Kodak Carousel S-AV 2050 AV, skyggnuvél fyrir 36v, 400W lampa. Vélin var sérsmíðuð viðbót við Kodak Carousel fyrir stóra salinn í Háskólabíó.

Skyggnuvél var í öllum sölum Háskólabíós. Vélarnar voru notaðar til að sýna skjáauglýsingar í byrjun sýninga og í hléi. Þegar kom að síðustu skyggnu gangsetti skyggnuvélin kvikmyndasýningarvélina.

 

Komdu í heimsókn
Hvaleyrarbraut 13,
220 Hafnarfjörður
Kt. 530678-0409
Opið virka daga
mán. - fim. 10:00 - 16:00
fös. 10:00 - 14:00
Logo Fyrirmyndar stofnun 2023