Christe Autowind 3 diskakerfi (plattar), framleitt í Bandaríkjunum.
Diskakerfið var notað til þess að hýsa filmuna fyrir sýningarvélarnar í Laugarásbíói á árunum 2000–2010 en áður hafði Laugarásbíó notað svokallaða sýningarturna þar sem öll myndin var sett upp á eina spólu og fór í gegnum vélina yfir á aðra spólu og þurfti þá að spóla til baka. Þegar plattarnir voru notaðir þurfti aldrei að spóla til baka því að filman var sýnd innan úr kjarna eins disksins, inn á kjarna næsta disks og öfugt.
Diskakerfið samanstóð af þremur diskum. Fyrir eina bíómynd þurfti tvo diska, hver samstæða gat því hýst tvær filmur samtímis. Ein diskasamstæða var við hverja sýningarvél, filman fór beint af einum disk í gegnum sýningarvélina inn á annan (tóman) disk.
Plattarnir höfðu allir sjálfstæða virkni með skynjara sem ákvað hraðann á disknum. Ummál filmunnar á disknum kallaði á mismunandi hraða, filman innst þurfti að snúast hraðar heldur en filman yst.
Sams konar Christe diskakerfi var notað í öllum kvikmyndahúsum í Reykjavík og á Akureyri nema í Háskólabíói sem notaði Keynotone diskakerfi með Keynotone sýningarvélum.