Bolex H-16 Reflex með linsu

Safnnúmer: Sm 10-3, 2

Bolex H 16 Reflex upptrekkt kvikmyndatökuvél með KERN Vario-Switar 1:2,5 f=18-86mm OE linsu H16 RX. Með vélinni fylgir áltaska, ljósmælir frá Bolex, filterabox og tökubarkar.

Fyrstu upptrekktu kvikmyndatökuvélarnar komu á markaðinn um 1930 og tóku þær við af handsnúnum tökuvélum. Með tilkomu þeirra varð bylting í kvikmyndagerð, nú var mun auðveldara að halda réttum hraða og í fyrsta skipti möguleiki á að stilla ljósop og fókus. Í upptrekktum tökuvélum var fjöður sem trekkt var upp með sveif og keyrði gangverkið í vélunum áfram. Þróaðri vélar höfðu þann eiginleika að þær breyttu ekki um hraða út alla upptrekkinguna og stöðvaðist vélin í stað þess að hægja á sér. Ein upptrekking dugði ekki lengi eða í mesta lagi um mínútu í minni gerðum upptökuvéla.