Eiki RT–2

Safnnúmer: Sm 06-9, 1

Eiki RT–2 kvikmyndasýningarvél, spilar 16 mm filmu með analog hljóði. Glóþráðarlampi er í vélinni.

Tegundin Eiki var með algengustu tegundum sýningarvéla seinni hluta 16 mm væðingunnar. Vélarnar voru sjálfþræðandi og mjög notendavænar. Japanskar vélar voru einnig mun ódýrari.

Kvikmyndasafnið á fjölmargar 16 mm sýningarvélar af ýmsum gerðum og útfærslum. Vélarnar voru aðallega notaðar af fagmönnum og stofnunum en slíkar vélar voru mikið notaðar í skólum og fyrirtækjum frá um 1950, þegar allt fræðslu- og kynningarefni var á filmu, fram að tíma myndbandsins. 16 mm sýningarvél var til að mynda í hverjum einasta skóla á Íslandi, flestar voru þær frá bandarísku merkjunum Bell & Howell og Kalart Victor og síðar frá japanska merkinu Eiki. Fræðslumyndum var miðlað í gegnum Íslenska fræðslusafnið sem síðar varð að Námsgagnastofnun. Magnari var yfirleitt innbyggður í sýningarvélarnar og fylgdu hátalarar með. Í stærri sölum voru vélarnar þó yfirleitt tengdar hljóðkerfi húsanna. Myndinni var varpað á tjald eða veggi en í skólastofum landsins voru niðurdregin sýningatjöld í flestum stofum. Austurbæjarskóli og Iðnskólinn í Reykjavík voru með sérstakan sýningarsal og þótti Austubæjarskóli með fullkomnustu skólabyggingum í Evrópu og er þar hallandi sýningarsalur. Í Austurbæjarskóla var notuð Kalart Victor vél en í Iðnskólanum voru þrjár tegundir af sýningarvélum.