Kvikmyndasafn Íslands tekur Grænu skrefin á þessu ári. Safnið mun leggja áherslu á að taka sem flest Græn skref á nýju ári samhliða því að efla innviði og starfsemi safnsins.
Á heimasíðu Grænna skrefa segir: Verkefnið Græn skref er árangursrík leið fyrir stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins að vinna markvisst að umhverfismálum í skrifstofustarfssemi sinni. Skrefin eru alls fimm og unnið er eftir skýrum gátlistum.
Umhverfisstofnun sér um úttektir og utanumhald verkefnisins. Þegar fimmta og síðasta skrefinu er náð er endurmat framkvæmt á tveggja ára fresti. Verkefnið er frábær leið til þess að virkja starfsmenn og miðla fræðslu um umhverfis- og sjálfbærnimál.
Kvikmyndasafnið hefur undanfarið gert mikla tiltekt og stefnt er að því að safnið verði eins skipulögð, hrein og örugg varðveislustofnun og best verður á kosið.