Í 11. grein Kvikmyndalaga og í 5. gr. reglugerðar um Kvikmyndasafn Íslands nr. 446/2015 segir að safninu sé heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sína. Umsýslugjald af hverju byrjuðu verki er 8.500 kr.
Reikningar eru gefnir út af Fjársýslu ríkisins með 30 daga greiðslufresti. Safnið áskilur sér tveggja vikna afgreiðslufrest. Athugið að skriflegt leyfi rétthafa efnis þarf alltaf að liggja fyrir áður en efni er unnið og afhent.