Loftlagsstefna

Kvikmyndasafn Íslands ætlar að vera til fyrirmyndar í loftslags- og samgöngumálum. Safnið vill leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfið og stefnir á að hafa umhverfisáhrif og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi í ákvarðanatöku og daglegri starfsemi. Stefna þessi tekur mið af skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamkomulaginu og áherslu Félagsmálaráðuneytisins um kolefnishlutleysi.

Kvikmyndasafnið mun leggja áherslu á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni og stefnir að því að losun safnsins verði að minnsta kosti 40 % minni 2030 en hún var 2019. Einnig mun safnið kolefnisjafna alla eftirstandandi losun með kaupum á vottuðum kolefniseiningum frá og með árinu 2021.

Stefnan tekur til allrar starfsemi safnsins, allt frá ferðamáta starfsfólks, aðstöðu, ræstingu húsnæðis, til verklegra framkvæmda. Hún á einnig við um innkaup, notkun auðlinda og meðferð efna og úrgangs.

  • Kvikmyndasafn Íslands útvegar starfsfólki rafmagnshlaupahjól til styttri ferða.
  • Starfsfólki er boðið upp á samgöngusamninga.
  • Þegar pantaðir eru leigu- eða bílaleigubílar eða þegar notast er við hópferðabíla skal óskað eftir vistvænum bílum.
  • Starfsfólk er hvatt til að tileinka sér vistakstur.
  • Halda skal fjarfundi eftir því sem kostur er. Óska skal eftir rafrænni þátttöku í fundum og viðburðum.

  • Kvikmyndasafn Íslands tryggir aðstöðu á vinnustað fyrir þá sem hjóla eða ganga til vinnu og hljólastæði eru til fyrirmyndar.
  • Unnið verði að því að koma upp hleðslustöðvum fyrir rafbíla á bílastæði Hvaleyrarbrautar 13.

Við kaup á aðföngum og þjónustu er tekið tillit til umhverfissjónarmiða og vörur valdar í samræmi við stefnu ríkisins um vistvæn innkaup.

Sparlega er farið með vatn og orkuauðlindir, látum vatn ekki renna að óþörfu, slökkvum á rafmagnstækjum og ljósum sem eru ekki í notkun.

  • Sparlega er farið með efni og efnanotkun.
  • Ræstiþjónusta er umhverfisvottuð og allar ræstivörur einnig.

Við viðhald og úrbætur húsnæðis er miðast við að minnka neikvæð umhverfisáhrif en auka þau jákvæðu.

Úrgangur er flokkaður með viðeigandi hætti og dregið úr sorpi sem fellur til vegna starfsemi safnsins eftir bestu getu.

Loftslags- og samgöngustefnu Kvikmyndasafns Íslands skal fylgt eftir með aðgerðaáætlun til eins árs í senn. Í aðgerðaáætluninni eru tilgreindar áherslur og aðgerðir, þeim forgangsraðað og ábyrgðaraðilar tilgreindir. Endurskoða skal stefnuna á þriggja ára fresti eða oftar ef tilefni er til.
Komdu í heimsókn
Hvaleyrarbraut 13,
220 Hafnarfjörður
Kt. 530678-0409
Opið virka daga
mán. - fim. 10:00 - 16:00
fös. 10:00 - 14:00
Logo Fyrirmyndar stofnun 2023