Ampex 2 myndbandsupptöku- og afspilunartæki

Safnnúmer: Ss 21-3, 1

Ampex 2 myndbandsupptöku- og afspilunartæki fyrir tveggja tommu svarthvít myndbönd, framleitt í Bandaríkjunum. Tækið tók upp mynd og hljóð á sama myndbandið og var notað í upptökur og til útsendingar. Myndbandstæki frá Ampex þóttu þau bestu sem hægt var að fá á þeim tíma.

Ampex 2 var upprunalega í eigu Sjónvarpsins. Tækið tók við af forvera sínum Ampex 1 sem var fyrsta myndbandsupptöku- og afspilunartæki Sjónvarpsins og kom til landsins á fyrsta starfsári þess árið 1966. Ampex 1 var ekki lengi í notkun þar sem fljótlega komu fram betri tæki svo sem Ampex 2 og Ampex 3. Á Ampex 1 var aðeins hægt að klippa handvirkt en á Ampex 2 og 3 var hægt að klippa elektrónískt.

Vegna stærðar tækisins var það eingöngu notað innandyra eða í stúdíói Sjónvarpsins. Myndefnið var tekið upp með upptökuvélum sem myndbandstækið yfirfærði yfir á myndband.

Hvaleyrarbraut 13,
220 Hafnarfjörður
Kt. 530678-0409
Opið virka daga
mán. - fim. 10:00 - 16:00
fös. 10:00 - 14:00
Logo Fyrirmyndar stofnun 2023