Hlutverk Kvikmyndasafns Íslands (í undirbúningi)
Með gerð námskrár Kvikmyndasafns Íslands eru sett ákveðin meginmarkmið:
Útfærsla - uppbygging heimsóknar í Bæjarbíó
Leikskólastig:
Boðið verður upp á fræðslu þar sem kvikmyndaverk eða bútar úr völdum kvikmyndum og /eða teiknimyndum verða notaðir til að skapa umræður um hin ýmsu svið mannlífs og menningar og verður þar stuðst við almenn fræðslumarkmið leikskólans. Áhersla verður lögð á hlutverk fjölskyldunnar, stöðu barna og samanburð ólíkra hópa. Einnig verða börnin þjálfuð í að bera saman kvikmyndir og raunveruleikann. Þá er og leitast við að kynna kvikmyndir og kvikmyndagerð sem sjálfstætt listform. Viðfangsefnin verða miðuð við almennan þroska þessa aldurshóps og stuðst við Aðalnámskrá leikskóla, sem gefin var út af Menntamálaráðuneytinu árið 1999, bæði við markmiðssetningu og verkefnagerð. Leikskólakennarar geta því litið á framlag Kvikmyndasafns Íslands sem skemmtilegt og fróðlegt innlegg í það markvissa starf sem unnið er á leiksskólum landsins. Starfsfólk Kvikmyndasafns Íslands er einnig tilbúið til að aðstoða leikskólakennara og móta verkefni í samvinnu við þá og laga að mismunandi þörfum og áhugasviðum.
Helstu markmið fræðslu leikskólabarna eru:
Grunnskólastig:
Boðið verður upp á fræðslu þar sem bútar úr völdum kvikmyndum verða notaðir til að skapa umræður um hin ýmsu svið mannlífs og menningar sem tengjast því námsefni sem börnin eru að glíma við í skólanum. Fræðsluefni það sem Kvikmyndasafn Íslands býður upp á er hugsað sem skemmtilegt og fróðlegt ítarefni þar sem meginmarkmið aðalnámskrár verða höfð til hliðsjónar. Verður þar stuðst við almenn fræðslumarkmið grunnskólans. Því verður miðað að því að efla samfélagsvitund, umhverfisvitund og söguvitund nemenda. Áhersla verður lögð á samfélagið í nútíð, fortíð og framtíð. Ólíkir menningarheimar verða skoðaðir og bornir saman og nemendur velta fyrir sér listinni, sannleikanum og sögunni. Er kvikmyndin trúverðug heimild um mannlíf og menningu? Einnig verður fjallað um kvikmyndina og kvikmyndagerð sem sjálfstætt listform. Farið verður í helstu strauma og stefnur kvikmyndasögunnar og meisturum kvikmyndanna gerð skil. Fjallað verður um helstu þætti við gerð kvikmynda og teiknimynda.
Viðfangsefnin verða miðuð við almennan þroska hvers aldurshóps fyrir sig. Við gerð verkefna var Aðalnámskrá grunnskóla, sem gefin var út af Menntamálaráðuneytinu árið 1999, höfð til hliðsjónar, bæði við markmiðssetningu og verkefnagerð. Verkefni þau sem Kvikmyndasafnið hefur upp á að bjóða eru því öll tengd við aðalnámskrá ráðuneytisins og nýtast því kennurum sem ítarefni. Grunnskólakennarar geta því litið á framlag Kvikmyndasafns Íslands sem skemmtilegt og fróðlegt innlegg í það markvissa starf sem unnið er í grunnskólum landsins. Starfsfólk Kvikmyndasafns Íslands er einnig tilbúið til að aðstoða kennara og móta verkefni í samvinnu við einstaka kennara og skóla, og laga að mismunandi þörfum og áhugasviðum.
Verkefni sem í boði eru tengjast kennslu í íslensku, samfélagsgreinum, lífsleikni, tungumálum og listgreinum.
Helstu markmið fræðslu grunnskólabarna eru:
Framhaldsskólastig:
Boðið verður upp á fræðslu fyrir framhaldsskólanemendur þar sem kvikmyndir, teiknimyndir eða bútar úr völdum kvikmyndum verða sýndir, með það að markmiði að skapa umræður meðal nemenda um hin ýmsu svið kvikmyndamenningar sem og mannlífs og menningar. Kvikmyndin sem sjálfstætt listform, kvikmyndasaga og kvikmyndagerð eru tekin til umfjöllunar og skoðunar. Einnig er litið á kvikmyndina sem heimild um mannlíf og menningu. Fræðsluefni það sem Kvikmyndasafn Íslands býður upp á, er bæði hugsað sem nauðsynlegt innlegg í listnám framhaldsskólanna en einnig sem skemmtilegt og fróðlegt ítarefni til stuðnings öðru formlegu námi sem fram fer í skólanum. Við gerð námskrár Kvikmyndasafnsins hefur aðalnámskrá framhaldsskólans verið höfð til hliðsjónar bæði við markmiðssetningu og verkefnagerð.
Safnið lítur á það sem hlutverk sitt að styðja og styrkja það starf sem unnið er í framhaldsskólum landsins. Sérstaklega hefur starfsfólk safnsins áhuga á að koma til móts við kennara listgreina og leggja þeim lið með það sameiginlega markmið í huga að efla sjónmennt á Íslandi. Eitt af hlutverkum og markmiðum framhaldsskóla er samkvæmt aðalnámskrá að kenna nemendum að njóta menningarlegra verðmæta. Einnig er talað um að efla víðsýni og umburðarlyndi, þjálfa nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýnni hugsun. Þessi atriði hafa verið nýtt sem leiðarljós við gerð þessarar námskrár sem og við verkefnagerð og val viðfangsefna.
Kvikmyndasafn Íslands býður upp á verkefni fyrir framhaldsskóla sem tengjast íslensku, sögu, þjóðfélagsfræði, tungumálum og listgreinum. Einnig verður fjallað um kvikmyndina og kvikmyndagerð sem sjálfstætt listform. Farið verður í helstu strauma og stefnur kvikmyndasögunnar og meisturum kvikmyndanna gerð skil. Fjallað verður um helstu þætti við gerð kvikmynda og teiknimynda, mismunandi tækni og útfærsla skoðuð og skilgreind. Tekið verður mið af áföngum listgreina sem fram koma í Aðalnámskrá framhaldsskóla, þar sem heimsókn í Kvikmyndasafnið getur auðgað kennslu ákveðinna áfanga. Einnig býðst kennurum að koma með óskir um afmörkuð viðfangsefni.
Helstu markmið fræðslu framhaldsskólanemenda eru:
Háskólar:
Kvikmyndasafn Íslands býður upp á fræðslu fyrir háskóla, bæði í tengslum við hinar ýmsu greinar heimspeki- og félagsvísindadeildar og eins í tengslum við formlegt listnám. Hlutverk Kvikmyndasafns Íslands er þá fyrst og fremst að styðja og styrkja það nám sem fram fer í kennslu- og vísindastofnunum á háskólastigi. Kvikmyndasafn Íslands lítur á það sem mikilvægan þátt í fræðslustarfsemi sinni að veita kennurum og nemendum góða þjónustu en forsenda þess að vel takist til á þessu skólastigi er góð samvinna kennara og starfsfólks Kvikmyndasafnsins.
Kvikmyndasafn Íslands býðst til að útvega erlendar kvikmyndir og ýmis konar efni tengt kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu til sýningar og umfjöllunar í safninu. Einnig er Kvikmyndasafnið tilbúið til að skipuleggja formleg námskeið fyrir háskólanema í samvinnu við kennara.
Fullorðinsfræðsla:
Hlutverk og markmið fullorðinsfræðslu Kvikmyndasafns Íslands er að vekja athygli og áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð. Því er lögð á það áhersla að kynna á námskeiðum og með öðrum hætti kvikmyndina sem sjálfstætt listform. Fjallað verður um sögu kvikmyndarinnar, strauma og stefnur í kvikmyndagerð og meistara kvikmyndasögunnar. Einnig verða valdir ákveðnir og afmarkaðir þættir til umfjöllunar.
Samvinna:
Kvikmyndasafn Íslands hefur sett sér það markmið að verða leiðandi aðili í faglegri umfjöllun um kvikmyndir hér á landi. Kvikmyndasafnið mun efna til námskeiða og fyrirlestra og leitast við að fá færustu aðila á þessu sviði til að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Kvikmyndasafn Íslands mun því leita eftir samvinnu við hinar ýmsu stofnanir og félagasamtök í landinu.