Ný teppi í sýningarsal.
Síðan Kvikmyndasafn Íslands tók við rekstri Bæjarbíós hefur staðið yfir yfirgripsmikil endurgerð á innviðum bíósins. Reglulegar sýningar hafa verið á vegum Kvikmyndasafnsins síðan í desember 2001. Bæjarbíó er eign Hafnarfjarðarbæjar en Kvikmyndasafn Íslands hefur haft afnot og umráðarétt yfir bíóinu síðan 1997. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu að innan og það verið fært til upprunalegs horfs. Bærinn reisti húsið á stríðsárunum og fyrsta sýning mun hafa farið fram í janúar 1945. Í upphafi var ákveðið að tekjur af sýningum rynnu til byggingar og reksturs öldrunarheimilis í Hafnarfirði og víst er að svo mun hafa verið í upphafi. Þegar frá leið dró úr aðsókn að kvikmyndahúsum almennt og að lokum fór svo að reglulegar sýningar í bíóhúsum með einn sýningarsal þóttu ekki lengur borga sig. Þess má geta að nú á dögum eru flest bíóhús með 3 - 10 sýningarsali. Í fyrstu gengu þessi tvö bíóhús, þ.e. Bæjarbíó og Hafnarfjarðarbíó, sem var í einkaeign , ákaflega vel og Hafnarfjörður var nefndur "bíóbærinn". Bíóstjórarnir; Helgi Jónsson í Bæjarbíói og Níels Árnason í Hafnarfjarðarbíói voru ötulir við öflun vandaðra kvikmynda og sóttu gjarnan myndirnar sjálfir til Danmerkur en Danir höfðu á þeim tíma með dreifingu á efni til Íslands að gera. Hafnarfjarðarbíó var rifið fyrir nokkrum árum en Bæjarbíó er sem fyrr segir í umsjá Kvikmyndasafnsins sem hefur staðið að endurgerð þess. Húsnæðið hefur verið málað að innan, sett upp nýtt og fullkomið sýningartjald og einnig fortjald fyrir sviðið. Smíðaðir voru nýir vegglampar á veggi sýningarsalar eftir upprunalegum teikningum og allar hurðir í húsinu ásamt milligerð í miðasölu smíðað eftir teikningunum. Ný gólfefni voru sett á anddyri og forsal. Sýningarklefi var gerður upp og málaður og nýjar sýningarvélar og hljóðkerfi (surround) sett í húsið og raflagnir endurnýjaðar. Þá hefur verið komið fyrir fullkominni aðstöðu til að sýna 16 mm filmur sem og stafrænar myndir. Nýtt brunakerfi og öryggiskerfi er komið í bíóið. Lengi vel var upphitun í bíóinu vandamál en nú hefur Hafnarfjarðarbær komið upp nýju hitakerfi fyrir húsið svo að það mál er leyst. Nýjasta endurbótin var svo gerð eftir hátíðarnar þegar lagt var nýtt teppi á sýningarsal bíósins. Það sem eftir stendur er svo að endurnýja sætin í bíóinu en það er langdýrasta aðgerðin sem eftir er.
Róbert Bjarnason var lengst af sýningarstjóri í Bæjarbíói. (Ljósm. Haukur Sigtryggsson)