Fréttir

Sýnd í Bæjarbíói 9. og 13. mars

Kvikmyndasafnið sýnir: "Ský á reki", ("Kauas pilvet karkaavat"), þriðjudag. 9. mars kl. 20:00 og laugardag 13. mars kl. 16:00  

 

• KREPPAN Í FINNLANDI

Leikstjóri: Aki Karismaki

Ský á reki

Hjónin Lauri, sporvagnsstjóri, og Ilona, yfirþjónn, búa í Helsinki og hafa komið sér nokkuð vel fyrir þegar tilveru þeirra er skyndilega ógnað með atvinnuleysi. Þau eru of stolt til að fara á atvinnuleysisbætur og leita því allra leiða til að finna út úr afkomu sinni. Kaupin á nýja litasjónvarpstækinu og fjarstýringunni, á raðgreiðslum, er vísbending um að eitthvað slæmt muni gerast sem svo sannarlega verður raunin og bankinn gengur fast eftir sínu. Hjónakornin mæta mótlæti af ýmsu tagi en ást þeirra yfirvinnur allar hindranir. Aðrar persónur myndarinnar sem svipað er komið fyrir, eiga ekki þessu láni að fagna og fá taugaáfall eða verða alkóhólisma að bráð. Skilaboð myndarinnar eru skýr; aldrei að gefast upp þótt á móti blási.

Atvinnuleysi er ein helsta ógnin í vestrænum samfélögum. Nálgun Kaurismaki er ljúfsár stúdía á lífið og það að yfirstíga erfiðleika. Hann beinir augum okkar að afleiðingum fremur en orsökum. Staða hjónanna er engum að kenna, það er enginn sökudólgur, heldur er um að ræða afleiðingu efnahagshruns. Eins og í mörgum mynda Kaurismaki er tíminn afstæður, hér nokkuð hægur og jafnvel stopp og svipar þannig til ástandsins í lífi þeirra Lauri og Ilona. Þegar hins vegar líður að lokum myndarinnar verður atburðarásin hraðari og harmónerar þannig við líflegri takt í lífi hjónanna.

 

Finnland (1996). Kauas pilvet karkaavat. FILMA.

Aðalleikarar: Sakari Kuosmanen, Kati Outinen, Elina Salo og Kari Vaananen.

Lengd: 97 mín, litur. - Enskur texti.

Sýningar eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, þriðjudaga kl. 20:00 og laugardaga kl. 16:00.

Húsið opnar ca. hálftíma fyrir sýningu.

Verð aðgöngumiða er kr. 500.-

Sími í Bæjarbíói á sýningartíma 5556160.

Sími Kvikmyndasafns Íslands: 565 5993 á skrifstofutíma.

 

www.kvikmyndasafn.is

kvikmyndasafn hjá kvikmyndasafn.is



Höfundaréttur 2005 © Kvikmyndasafn Íslands • National Film Archive of Iceland • Hvaleyrarbraut 13 • 220 Hafnarfjörður • Iceland
Tel: +(354) 565 5993 • Fax: +(354) 565 5994 • kvikmyndasafn hjá kvikmyndasafn.is